Þjónusta

Verðmat, sala og útleiga — alla leið.

Fyrirtækjasala Íslands hefur um áratuga skeið veitt viðskiptavinum sínum faglega þjónustu við verðmat, kaup og sölu fyrirtækja og atvinnuhúsnæðis ásamt útleigu þeirra. Fyrirtækjasala Íslands hefur starfað óslitið síðan 1994 og er elsta fyrirtækjasala landsins sem veitir sérfræðiþjónustu sniðna að litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Fyrirtækjasala Íslands er löggild fasteignasala, fyrirtækjasala og skipasala, og aðili að Félagi fasteignasala. Við vinnum með öflugu tengslaneti lögmanna og sérfræðinga í fjármálum, þ.m.t. löggiltra endurskoðenda, til að tryggja fagleg vinnubrögð í hverju verkefni fyrir okkar viðskiptavini.

Verðmat

Við framkvæmum verðmat á fyrirtækjum og atvinnuhúsnæði, unnið af löggiltum sérfræðingum innanhúss.

Fyrir seljendur fyrirtækja

Við aðstoðum eigendur við undirbúning að söluferli, verðmat, markaðs- og framsetningu, áreiðanleikakönnun á kaupendum, og alla samninga- og skjalagerð þegar fyrirtækið selst. Trúnaður og fagmennska alla leið.

Fyrir kaupendur fyrirtækja

Leitar þú að fyrirtæki til kaups? Við aðstoðum við að finna réttu tækifærin, meta þau og leiða samningaferlið.

Fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis

Hvort sem þú vilt selja eða leigja út atvinnuhúsnæði, aðstoðum við við verðmat, markaðssetningu og samningagerð.

Fyrir leigjendur og kaupendur atvinnuhúsnæðis

Leitar þú að atvinnuhúsnæði til leigu eða kaups? Við aðstoðum við að finna rétta staðsetningu og leiða ferlið frá upphafi til enda.

Leiguumsjón - Ástandsskoðun

Við höldum utan um leigusamninga fyrir eigendur og komum fram fyrir hönd eiganda (leigusala) gagnvart leigutaka. Við sjáum m.a. um markaðssetningu, að finna hentugan leigutaka, áreiðanleikakönnun á leigutökum, ástandsskoðanir og úttektir við upphaf leigutíma og við lok leigutíma.

Almennt um þóknanir:

Söluþóknun fyrirtækja fer eftir þjónustustigi sem viðskiptavinur ákveður við upphaf söluferlis (t.d. greiningarvinna, verðmat, skýrslugerðir o.s.frv.), og hvort fyrirtæki er í einkasölu eða almennri sölu. Söluþóknun fyrirtækja er að jafnaði 6,0% – 8,0% auk vsk, og reiknast af heildarsöluverði, þ.m.t. öllum rekstri, viðskiptavild, eignum, skuldum, lausafé og hlutafé (þó ekki fasteignum félagsins). Söluþóknun fasteigna er öllu jafna 3,0% auk vsk, og óháð því hvort fasteign er seld og/eða afhent í framsali hlutfjár, eða seld hefðbundinni sölu úr félagi. Lágmarksþóknun vegna sölu (fasteignir og fyrirtæki) er kr. 750.000,- auk vsk. Lágmarksþóknun vegna leigusamninga er kr. 450.000,- auk vsk. Þóknun vegna ótímabundinna leigusamninga eða tímabundnir skemur en 7 ár nemur 1,0x brúttó mánaðarlegri húsaleigu auk vsk. Þóknun vegna leigusamninga til 7 ára eða lengur nemur 1,8x brúttó mánaðarlegri húsaleigu auk vsk. Skoðunar- og skráningargjöld við upphaf samnings um sölu- eða leiguþjónustu eru að lágmarki 235.000,- auk vsk, en eðli máls taka mið að eðli og umfangi hvers verkefnis (frádráttarbært frá heildar þóknun sé um einkasölu að ræða). Öll þjónusta Fyrirtækjasölunnar er virðisaukaskattsskyld sbr. lög þar um. Bæta skal 24% virðisaukaskatti við öll uppgefin verð í krónum talið sem og/eða við söluprósentu eftir því sem við á, nema annað sé tekið fram.

Svar innan eins virks dags.