Fasteignir
Fasteign· Fasteignir erlendisÍ boði

Spánn: Glæsileg 3ja herb. íbúð - Los Alcázares

Calle Isla Menorca, Puerto Marina, Los Alcázares, Murcia, SpánnNr. 593

Um

Björt og nútímaleg íbúð í vinsælu Puerto Marina hverfinu, byggt árið 2017, tekin í notkun 2021. Íbúðin er glæsileg og vönduð í alla staði. Allt innbú fylgir, þ.m.t. listaverk á veggjum, borð, stólar, sófi, rúm, tilbúið til að flytja inní.  Tvö svefnherbergi (annað með baði), annað baðherbergi, innrétt eldhús, stofa og einkasvalir. Á fyrstu hæð (ofan jarðh.) þriggja hæða húss með lyftu. Puerto Marina er vel viðhaldið lokað hverfi á vesturströnd Mar Menor – stærsta saltvatnslóni Evrópu. Róleg, hlý og grunn vötn gera það tilvalið fyrir fjölskyldur og vatnaíþróttir. HELSTU KOSTIR Nútímaleg bygging frá 2017 í góðu ástandi, er nýjasti hlut af byggðarklasanum. • Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi (annað með baði). • Einkasvalir fyrir útivist. Landsvæði suður-megin er friðað og verður ekki byggt þar. • Öruggt, lokað hverfi með þremur sameiginlegum sundlaugum • Lyfta (húsið er á 1. hæð yfir jarðhæð) • Öll dagleg þjónusta í göngufæri • Stutt á ströndina  STAÐSETNING OG LÍFSSTÍLL Puerto Marina er vel viðhaldið lokað hverfi á vesturströnd Mar Menor, stærsta saltvatnslóni Evrópu. Róleg, hlý og grunn vötn gera það tilvalið fyrir fjölskyldur og vatnaíþróttir. • U.þ.b. 10-12 mín. göngufæri að ströndum og göngustíg Mar Menor • Þrjár stórar sameiginlegar sundlaugar innan hverfisins • Verslanir, veitingastaðir og þjónusta í stuttri göngufjarlægð • Murcia–Corvera flugvöllur ~20–25 mín í bíl • Alicante flugvöllur ~50 mín · Torrevieja ~20 mín · Murcia borg ~25 mín • Nokkrir glæsilegir golfvellir (La Serena, Roda, La Manga) í nágrenninu • Hentar vel fyrir heilsársbúsetu  • Frábært svæði til ferðamannaútleigu eða Airbnb  Á eigninni eru áhvílandi um kr. 9,5M.  Seljandi er tilbúinn að skoða ýmis skipti og/eða greiðslukjör.   ---------------------------------- Kostnaður kaupanda almennt við kaup notaðra íbúða á Spáni. Tölur eru áætlaðar:  Kostnaður kaupanda vegna aðilaskipta er svæðisbundinn (ITP) 7,75%. Heildar-kostnaður kaupanda gæti verið á bilinu 9 -11% ofaná kaupverðið, sem er hefðbundið í fasteignaviðskiptum á Spáni, en fer jafnframt eftir þóknun lögmanns kaupanda.  ----------------------------------