Fasteignir
Fasteign· SkrifstofuhúsnæðiÍ boði
Borgartún, Rvk - 130 fm skrifstofur - Aðgangsstýrð bílastæði.
Borgartún 25, Reykjavík, IcelandNr. 590
Um
Húsnæðið telst um 130 fm að stærð (notarými leigutaka), og skiptist í móttöku-gang, tvær skrifstofur, eldhús- og kaffihorn, fundarherbergi, stórt opið vinnurými og svalir til suðurs. Aðgengi að sameiginlegum salernum fyrir starfsfólk.
Opið vinnurýmið, horn-rymi, er með ljósu parketi á gólfum, og er rýmið með glugga á tvo vegu.
Gangur sem tengir öll rýmin, innangengur úr sameign/lyftum, sem hægt er að nýta sem setu-biðrými, teppalagður, aðgengisstýring með kóða.
Í eldhúshlutanum, eru stór borð til að athafna sig, vaskur, og uppþvottavél og tengi fyrir kaffivél, og önnur raftæki sem þurfa þykir.
Tvær stakar skrifstofur, (var áður eitt fundarherbergi en stúkað niður), og báðar með útgang útá svalir, gólf eru teppalögð.
Sér bílastæði fylgja hinu leigða á aðgangsstýrðum (hlið) bílastæðum - mikill kostur á svæðinu fyrir starfsmenn.
Aðgengi að aðganngsstýrðum bílastæðum er innifalið í leigugjaldi.
Sameign er glæsileg í alla staði, veitingastaðir og kaffiaðstaða er í lobbýi, tvær lyftur, og gott aðgengi fyrir viðskiptavini að bílastæðum.
Til að bóka skoðun þá vinsamlegast hafið samband við Björgvin í s. 773-4500, eða senda línu á netfangið bjorgvin@atv.is (hafið nafn, síma og fyrirtæki í póstinum).