Fasteignir
Fasteign· LagerhúsnæðiÍ boði

Hátún - Þjónustu- eða Geymsluhúsnæði

Hátún, Reykjavík, IcelandNr. 592

Um

Sérlega vel staðsett húsnæði sem hentar vel undir t.d. heildsölu, lagerrými, ýmsa létta þjónustu starfsemi, einnig sem geymsluhúsnæði fyrir verktaka. Staðsetning er í kjallara. Innkeyrslurampur og over-head innkeyrsluhurð og gott svæði og pláss til vörumóttöku eða -afhendingar, eða hleðslu og affermingu. Rampar eru á göngum og því hægt að taka trillu með palletur að rýminu. Tvær inngangshurðir eru á rýminu, önnur er hægt að opna beggja vegna til að keyra inn trillu með bretti inná gólf.  Mögulegt er að hafa þjónustu í rýminu þar sem gönguhurð rýmisins er beint gengt stigahúsi, og geta viðskiptavinir komið að rýminu í gegnum aðal stigagang hússins sem er snyrtilegur og dúklagður slitsterkum linoleum. Sameign er snyrtileg og gólf lökkuð með iðnaðarlakki.  Sameign þrifin reglulega.  Aðgangur að sameiginlegu salerni og sturtu.  Rýmið telst 77,8 m2 brúttó, og um 45 m2 nettó að stærð (notarýmið sjálft).  Húsnæðið er laust til afhendingar. Til að bóka skoðun hafið samband við Björgvin í s. 773-4500, eða senda línu á netfangið bjorgvin@atv.is (Vinsamlega hafið nafn, síma og fyrirtæki í póstinum).